Jóhann Björnsson og Victor Ingvi Jacobsen ákváðu að sameina krafta sína og stofnuðu Osteópatastöðina 2021. Þeir útskrifuðust báðir frá Skandinaviska Osteopathögskolan í Svíðþjóð.
Þeirra metnaður og ástríða er að hjálpa þér við að auka lífsgæði og lifa verkjalaus. Með meðferð í Osteópatíu getur þú aukið þína vellíðan og heilbrigði.
Osteópatía er stoðkerfis meðhöndlunarkerfi sem upprunnið er í Bandaríkjunum árið 1874 og krefst 4-5 ára háskólanáms auk 1000 klukkustunda starfsreynslu undir leiðsögn kennara til þess að fá löggildingu á Íslandi.
Osteópatía er meðferðarform til að greina og meðhöndla líkamleg vandamál í gegnum vöðva, liða og taugakerfið.