Spurt & svarað

Þessar þrjár starfstéttir eru að mörgu leyti líkar þó svo að margt sé líka frábrugðið. Allar meðferðirnar vinna að sama markmiðinu að minnka verki sjúklings, því er náð með að auka hreyfifærni og bæta líkamsstöðu.
Hver meðferð er með sína heimspeki og meðferðarform til að ná þessum markmiðum.

Kírópraktorar vinna með miklum áherslum við hryggjasúluna og taugaboð útfrá henni en Osteópatar horfa alltaf á líkaman í heildsinni og öll kerfi líkamans þurfi að vinna í sameiningu.
Meðhöndlunar aðferðir eru svipaðar en Kírópraktor virðist notast við hnykkingar sem aðalform á móti Osteópatar notast við víðara svið á aðferðum ásamt nuddi, teygjum og hnykkingum


Margir kírópraktorar vinna á 5-15 mínútna tímum á meðan tímar osteópata eru yfirleitt um 30-40 mínútur, það skilar sér yfirleitt í færri meðferðum.
Osteópatar vinna nær einungis með höndum eins og kírópraktorar en almennt er minna um það meðal sjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfarar nota mikið tæki og tól eins og stuttbylgjur, laser, höggbylgjur og heita bakstra.
Þeir leiðbeina fólki mikið með æfingar til að gera heima rétt eins og osteópatar og kírópraktorar.
Osteópatía er heildræn nálgun til að meðhöndla allan líkamann en ekki bara einkenni

Fyrsti tími er lengri um 45-60 mín en þá er farið yfir sjúkrasögu auk greiningar á vandamáli.
Endurkomu tímar eru svo um 30 mín.

Heildarfjöldi meðferða er breytilegur eftir fólki og vandamáli hvers og eins.
Markmiðið er alltaf að hafa tíma eins fáa og þörf krefur. Osteópatinn þinn á að geta sagt þér fljótlega eftir fyrsta tíma og greiningu hvað hann telur vera þörf á mörgum tíma til að sjá árangur og bata en það er vissulega mjög frábrugðið á milli manna.

Nei. Þú getur pantað tíma án þess að fá beiðni frá lækni.

Nei. Þó svo ostéopatar séu löggild heilbrigðisstarfstétt þá eru þeir ekki með samning við TR heldur starfa sjálfstætt. Langflestir sjúkrasjóðir verkalýðsfélaga endurgreiða félagsmönnum sínum meðferðarkostnað ef þeir leita til osteópata.

Einfalt er að afbóka eða breyta tíma á bókunarsíðunni hjá okkur. Einnig er hægt að senda skilaboð eða hringja í 8498632.

Ef þú hefur einhverjar spurningar endilega hafðu samband.