Osteópatía er stoðkerfis meðhöndlunarkerfi sem upprunnið er í Bandaríkjunum árið 1874 og krefst 4-5 ára háskólanáms auk 1000 klukkustunda starfsreynslu undir leiðsögn kennara til þess að fá löggildingu á Íslandi.
Osteópatía er meðferðarform til að greina og meðhöndla líkamleg vandamál í gegnum vöðva, liða og taugakerfið. Unnið er við heildræna nálgun þar sem andlega og líkamlega hliðin er tekin inn í myndina, skoðað er hvernig utanaðkomandi þættir geta haft áhrif. Osteópatar notast við allnokkrar aðferðir og velja hvað hentar best hverju sinni, þar má nefna til dæmis hnykkingar, teygjur og nudd til þess að auka hreyfanleika í liðum, minnka vöðvaspennu, auka tauga og blóðflæði til þess að hjálpa líkamanum að ná sínu jafnvægi og lagfæra sig sjálfur.
Osteópatía hentar fyrir alla aldurhópa, þar sem við notumst við fjölbreyttar aðferðar getur osteópatía hjálpað við flest öll vandamál sem koma útfrá stoðkerfinu allt frá langvarandi krónískum verkjum yfir í taugaklemmur.
Margir koma út af verkjum eða eymslum í hálsi, baki, mjöðmum, fótum, leiðniverkjum eða tennis olnboga. Aðrir koma útaf astma, gigt, meltingarvandamálum eða líkamsstöðu vandamálum.
Osteópatar bera virðingu fyrir náttúrulegum hæfileika líkamans til að lagfæra sig og reyna einungis að grípa inn í þegar verkir og önnur óþægindi eru til staðar. Kostir osteópatíu eru almennt betri hreyfanleiki og líkamlegur stöðugleiki sem endurspeglast í öðrum líffærakerfum eins og blóðrásar, tauga eða sogæðakerfis í aukinni virkni.
Heimspeki osteópatíunnar er það sem skilur hana frá öðrum heilbrigðisgreinum. Grundvallar hugsunin er að allir hlutar líkamans starfa í sameiningu. Ef einn hluti hans er skertur á einn eða annan hátt þá þarf restin af líkamanum að aðlagast og bæta upp fyrir þessa skerðingu sem veldur oft á tíðum bólgum, verkjum, stífleika eða öðrum kvillum. Þegar líkaminn er laus við hindranir er það hlutverk osteópatans að aðstoða líkamann að draga úr verkjum, minnka álag og auka hreyfanleika til að líkaminn fái tækifæri til að lækna sig sjálfur.
Sími
849-8632
Netfang
[email protected]
Opnunartími
Mánudagar - Föstudagar
08:00 - 17:00
Staðsetning
Grensásvegur 50
108, Reykjavík
Sjá á korti