Útskrifaðist frá Scandinaviska Osteopathogskolan 2017. Starfaði hjá Heilsuborg og einnig undir Stíganda sjúkraþjálfun.
Ég kynntist osteópatíu eftir að hafa sjálfur verið að kljást við meiðsli á mínum íþróttaferli. Prófaði allskyns meðferðir og eftir að hafa kynnst osteópatíunni þá heillaðist ég strax af hversu heildræn, heimspekileg og hversu ólík meðferðarform eru notuð við að leysa hin fjölbreyttu verkefni sem osteópatar kljást við.
Fyrst og fremst varð ég þó osteópati til að hjálpa fólki og auka lífsgæði almennings en ég nýt þess alla daga að geta leiðbeint og aðstoðað fólk.
Útskrifaðist frá Skandinaviska Osteopathögskolan 2023. Byrjaði að vinna sem nemi samhliða skóla árið 2021.
Hef alltaf haft brennandi áhuga á hreyfingu og heilsu, vissi alltaf að ég vildi vinna eitthvað tengt heilsu og líkamanum eftir að hafa æft ótal margar íþróttir frá unga aldri og stunda crossfit af miklu kappi núna.
Fannst osteópatían gefa fjölbreyttustu þekkinguna til að geta tekist á við ólík vandamál og hversu heildræn hugsunin er í fræðinni.
Skemmtilegast við starfið er fyrst og fremst að fá tækifæri að hjálpa fólki að öðlast meiri vellíðan, gefa ráð og hjálpa fólki að ná markmiðum sínum.
Sími
849-8632
Netfang
[email protected]
Opnunartími
Mánudagar - Föstudagar
08:00 - 17:00
Staðsetning
Grensásvegur 50
108, Reykjavík
Sjá á korti